19.03.2012 14:29
Mánudagur
Komið þið sæl, elsku vinir.
Jæja, þá er heimferðardagurinn kominn. Við komum hingað á IBTI um kl.20:00 í gærkveldi eftir langan dag. Við áttum góðan tíma í kirkjunni hjá John Beynon í gærmorgunn. Eftir samkomuna hittum við margt skemmtillegt fólk sem gaman var að kynnast - þar var mikið talað. Cathy var svo búin að undirbúa góðan mat handa okkur og fjölskyldunni sem við borðuðum þarna. Í gær var mæðradagur hér í Englandi -- mikill hátíðisdagur sem gaman var að upplifa. Allir að kaupa blóm handa mömmu og ömmu. Meira að segja ég fékk bæði páskaliljur og gjafir - fyrst við morgunverðarborðið hjá Beynons hjónunum - þá hafði Peter keypt blóm handa frúnni og konfekt og blóm handa mér ! Síðan fékk ég konfekt og bodykrem frá Cahy og John. Þetta var mjög gaman.
Kl. 14:30 vorum við svo lóðsuð út út Beverly og héldum áfram alla leið hingað. Það er ekkert smá þreytandi að þeysast á 130 km hraða í mikilli umferð á hraðbrautum hér. Maður verður að fylgja taktinum. Bílstjórinn minn var orðinn vel þreyttur eftir að keyra í ca. 5 1/2 klst. -- Fengum notalega grænmetissúpu hjá Fhilidu ( sem er ein af gamla staffinu hér) og ávexti. Sváfum svo vel í fallegu , köldu gestaherbergi hér. -- Nú skín sólin úti og bræðir héluna sem lá yfir jörð í morgunn.
Allt er komið í töskur og morgunmatur kl. 8:00. Við eigum að leggja af stað frá Gatwick kl.13:30 og lenda heima á landinu okkar kalda kl.16:40. Jakob sonur okkar ætlar að koma okkur eitthvað áleiðis heim - allavega til höfuðborgarinnar en þar ætlar Sara að sjóða handa okkur langþráðan fisk.
Ég reikna ekki með að skrifa mikið fyrr en í ágúst - september eða um það leiti sem farfuglarnir leggja af stað frá Íslandi. Ég þakka innilega fyrir samfylgdina að þessu sinni. Guð gefi ykkur öllum yndislegt vor og sumar.
Love,
Gullý
Það sem naðist að framkvæma í Burkina á þessari "vertíð" var:
Ný wc x 8 - húsvarðarhús, matargeymsla og ein hlið á múrnum byggð. Öll þessi hús ásamt matsal máluð fallega. Ýmislegt betrumbætt á skólalóð - mikil skrifstofuvinna við skráningu barnanna lokið - keyptar geitur og hænur - tekið á móti einum gámi og unnið úr því efni - traktor tekinn í notkun - tekið á ýmsum skólamálum - tveir nýir Dignity hópar stofnaðir.

Skrifað af Gully
17.03.2012 22:36
Laugardagur
Hallo, elsku vinir.
Vid erum buin ad eiga yndislegan tima her i Beverly. Vorum med Cathy og John sma tima i gaer. Forum med gomlu hjonunum til York i dag. Gengum um trongar skemmtilegar verslunargotur. I kvold vorum vid i kirkjunni hans John a pizzu og spjall kvoldi. Hinrik a ad tala tar i fyrramalid. Eftir tad liggur leidin sudur i att ad Gatwik flugvelli - ca 4-5 tima akstur ef allt gengur vel. Reiknum med ad sofa a IBTI naestu nott.
Fallega fegurdarskinid sem Gud gaf mer er ad njota sin i botn her. Kanski upplifi eg tetta svona sterkt tar sem tad er eiginlega bara tvennt sem er fallegt i Burkina Faso - tad er fallega skapada folkid og bruna litrofid i natturunni. Her er svo margt - natturan, husin og allir fallegu hlutirnir i budunum. Hja mer er tetta er kanski andstadan vid menningarsjokkid sem margir fa tegar teir koma til Afriku og sja alla eymdina tar.
Vid hlokkum til ad koma heim til Islands og vera med yndislegu fjolskyldunni okkar og vinum.
Tar er lika svo margt annad yndislegt - bjortu sumarnaeturnar - rosirnar i gardinum - hreina loftid o.sv.frv.
Reyni ad skrifa sma fra IBTI.
Gud gefi ykkur goda nott og ljufa drauma.
Love,
Gully

- 1
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 97570
Samtals gestir: 25957
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:33:09