ABC Skólinn í Bobo
Árið 2007 var settur á stofn barnaskóli á vegum ABC í borginni Bobo í Burkina Faso í V-Afríku. Skólinn er við fátækrahverfi þannig að börnin sem í hann koma ættu enga möguleika á skólagöngu ef ABC og stuðningsaðilar heima á Íslandi kæmu ekki til.
Í skólanum eru nú tæplega 200 börn. Snemma árs 2010 var reist nýtt skólahúsnæði sem áætlað er að taka í notkun nú á næstunni. Börnin fá smá morgunhressingu og góða hádegismáltíð í skólanum. Hjúkrunarmaður kemur í skólann 2-3var í viku og bindur um sár sem börnin fá oft hér. Hann fylgist líka með heilsufari þeirra að öðru leyti.
Enn eru mörg börn sem ekki hafa stuðningsaðila. Það kostar 3000 íslenskar kr. að styrkja barn á mánuði. Innifalið í því eru: laun kennara, matráðskonu og húsvarðar, matur, bækur, skólabúningur, læknishjálp og vatn sem þarf að sækja langan veg og borga fyrir. Hjónin Hinrik Þorsteinsson og Guðný R. Jónasdóttir fara fyrir þessu starfi.

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 97570
Samtals gestir: 25957
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:33:09