23.01.2012 23:10
Mánudagur
Komið þið sæl, elsku vinir.
Þá er best að senda einhverjar fréttir. -- Allt er komið á fullan gang með að reisa þann hluta múrsins sem við ráðum við núna. Fullt af mönnum í vinnu því Hinrik sagði smiðnum að þetta þyrfti að gerast fljótt. Við vorum nefnilega að vona að við fengjum styrk til að reisa afganginn og vildum að það yrði gert áður en við færum heim í mars. Nú er hinsvegar nokkurs konar pattstaða með þann styrk -- þetta verður bara allt að vera í Guðs hendi !!!
Nú er Elí búinn að skila af sér verkefni sem hann var upptekinn við í síðustu viku svo Hinrik náði góðu tali af honum í morgun. Hann veit um mann sem selur geitur en við erum búin að bíða eftir aðstoð við það í tæplega tvö ár. Þá var kona í Englandi sem gaf starfinu hér peninga til að kaupa geitur -- hún bíður spennt eftir að sjá myndir af búpeningnum. Hér gerast flestir hlutir "á morgun". Nú er víst búið að fá mann til að búa í húsinu á akurlandinu okkar svo hann getur þá litið eftir geitunum. Elí veit líka um einhvern sem selur ungar hænur af góðu kyni - þá getum við væntanlega notað peninginn sem kom inn hjá ABC fyrir jól og eiga að fara í það verkefni. o.s.frv.
Einn af fyrstu Dignity hópunum fær lánið endurnýjað á föstudag (sennilega) og nú höfum við peninga til að bæta við nýjum hópi 25 kvenna sem hafa beðið síðan fyrir jól. Þið sem hafið lagt peninga inn á Dignity reikninginn nýlega -- hafið hjartans þakkir fyrir. Líka kvenfélagið sem hjálpaði okkur fyrir jól.
Það er búið að vera hálfgert basl á okkur hjónakornunum undanfarið. Síðst liðinn laugardag vorum við búin að vera gaslaus í tvo sólarhringa. Við vorum búin að reyna víða að fá gas en ekkert gekk. Að vera gaslaus þýðir að þá er ekki hægt að elda mat, hita vatn, baka brauð, búa til jógúrt o.svl. Fyrsta daginn gátum við etið frosna afganga. Um morguninn fór ég út og fann þrjú múrsteinsbrot og gerði eldstæði, fann svo lauf og þurra þyrnistöngla af lóðinni - kveikti eld og náði að hita smá vatnssopa til að fá yl í kroppinn. Ég reyndi það sama næsta morgunn en hafði svo lítið til að brenna að vatnið var bara ylvolgt. Það hefur verið svo kalt á morgnana að sólarofninn hefur ekki náð upp nægum hita. --- Ég var búin að spyrjast fyrir hvar hægt væri að fá músa-eitur því þær tóku ekki gildrurnar en enginn vissi neitt. --Þegar þarna var komið og ég sá fram á að eitthvað lítið yrði í matinn á laugardaginn --- var mér eiginlega allri lokið og var sjálf farin "að vatna músum". Ég fór þá með ipodinn inn í herbergi - hlustaði á lagið okkar góða "Hide me now under your wings- cower me within your mighty hands ... When the oachen rise and thunders roar.. " Ég fól föður mínum á himninum þessi vandræði okkar og bað hann að hjálpa okkur. Það skifti engum togum - tárin hurfu og við drifum okkur af stað til að leita að því sem við þurftum. -- Það var eins gott að bílinn var í þokkalegu standi -- Ég var búin að ákveða að finna einhvern veitingastað sem við gætum borðað á -- fundum ekki það sem við leituðum að (við getum ekki borðað hvar sem er með okkar "hvítu maga") en enduðum á mjög góðum stað sem við þekkjum eða hjá Kaþólsku nunnunum hér. Þegar við gengum inn í fallega búinn salinn, mundum við eftir því að bóndadagurinn var þessa helgi svo ég gat þá loksins boðið bóndanum út að borða. Við áttum þarna góða stund, fórum svo í smá bílferð út fyrir bæinn. Á leiðinni heim smellti ég mér inn í eina verkfæra-búllu á markaðnum niðri í bæ - var með orðabók og gat útskýrt að ég þyrfti músaeitur. Það fékk ég eftir góðan tíma og á leiðinni heim ókum við fram á strák sem seldi gaskúta eins og passaði fyrir okkur. Við vorum því alsæl þegar heim var komið. ---- En músafárið er ekki aldeilis búið. Um kl.04:00 í nótt var mikill "hávaði" í svefnherberginu hjá okkur þar sem þær voru að éta eitthvað uppi á fataskáp sem þar er. )þar eru ferðatöskurnar með vetrarfötunum okkar). Hinrik fór svo fram að eiga sína morgunstund en ég passaði að enginn kæmist inn undir moskítónetið hjá mér.
Eftir þessa reynslu hef ég enn meiri samkennd með konunum mínum hér í þessu landi. Það eru þær sem ganga langar leiðir til að finna sprek eða höggva í sundur þykkar rætur og trjábúta til að geta kveikt upp eldinn fyrir utan kofana sína snemma á morgnana. Það eru líka þær sem þurfa að útvega eitthvað til að setja í pottinn til að elda. Það er ekki alltaf auðvelt.....
Guð geymi ykkur öll og takk fyrir að biðja fyrir okkur,
Love
Gullý
20.01.2012 04:05
Fimmtudagur
"Smiðurinn" okkar hann Pier er mættur á svæðið. Hann er að undirbúa að setja upp smábút af múrnum umhverfis skólann - allavega til að byrja með. Við þurfum að fara varlega með þær fáu krónur sem til eru. Það er verið að sækja um styrk til að reisa múrinn en við vitum ekki hvert svarið verður. Vonandi verður hægt að halda áfram innan skamms. Við vorum í skólanum í dag og sáum að ávaxtatrén sem voru gróðursett rétt fyrir framan skólann eru meira og minna étin af skepnum sem vaða þarna um alla lóð. -- Hér eru alls staðar mangótré í fullum blóma núna. Það er merkilegt hvernig þau bera ávöxt yfir aðal þurrkatímann.
Hér er frekar kalt núna þó það hlýni vel yfir hádaginn. Það er full þörf á að eiga hlýjan fatnað til að nota 2 - 3 mánuði á ári. Flýspeysurnar og flýsteppi sem við erum með hafa komið sér vel.
Pier kom með tvær risastórar músagildrur í dag. Hinrik var að basla við að spenna þær, en þær eru svo stífar. Vonandi ber vel í veiði í nótt.
Við vildum svo gjarnan að hlutirnir hér gengju aðeins hraðar fyrir sig..... Fólki liggur ekki mikið á -- og hér er tíminn svo afstæður. Þegar við ókum heim rétt fyrir sólsetur í dag sagði ég við Hinrik að við þyrftum að læra að vera eins afslöppuð og fólkið sem við ókum framhjá. Fólk nýtur þess að sitja úti við tímunum saman - annaðhvort eitt eða í hópi góðra vina.
Karlarnir í skólanefndinni ætla að hafa fund í fyrramálið í sambandi við að fá nýjan vörð á akurinn. Kanski verður þá hægt að hafa einhverjar skepnur þar. --
Við höldum í vonina og vonum það besta,
Love,
Gullý
18.01.2012 00:22
Þriðjudagur
Aðkoman hér var í lagi nema það að músin (mýsnar) sem ég talaði um í desember virðist halda að hún sé húsmóðir á þessu heimili. Músaskítur í öllum skúffum og skápum í svefnherberginu okkar og víðar. Hún virðist þó hafa verið eitthvað svöng því hún er búin að éta stórt gat á fallegt pils sem ég átti. Að öðru leyti -- bara þykkt ryklag yfir öllu en það er eðlilegt á þessum tíma.
Hér var líka flutt inn ung stúlka frá Hollandi sem er á vegum Trudiar. Hún kennir söng við skólann okkar í nokkrar vikur og gerir eitt og annað sem Trudi skipuleggur.
Við komum hingað undir kvöld á sunnudag þannig að við gátum komið okkur fyrir að einhverju leyti. Það var líka eins gott því löngu fyrir kl.09 morguninn eftir voru hér 9 gestir sem komu til að bjóða okkur velkomin.
Það var gaman að koma í skólann í gær. Allir voru í hádegisfríi svo krakkarnir voru úti við í litlum hópum. Þegar þau sáu okkur koma á hjólinu hófu þau upp fagnaðarlæti - komu og knúsuðu okkur, hneigðu sig og sungu/sögðu "hallelúja amen". Þetta var mjög notalegt.
Konan hans Mússa skólavarðar er flutt til karlsins síns með yngsta barnið þeirra. Hún og nokkrar aðrar konur sigta sand á skólalóðinni til að fá steina sem þær geta svo selt byggingarmönnum og fengið smá pening.
Hinrik er búinn að fara út á akurlandið til að taka stöðuna. Þar eins og annarsstaðar er bara þurr leirinn (moldin) núna þar sem búið er að taka alla uppskeru í hús og nýta hvert strá upp til agna.
Við höfðum fund í morgun með Elí þar sem við fóum yfir stöðuna. Við erum mjög spennt að byrja framkvæmdir.
Meira seinna,
love,
Gullý
16.01.2012 00:17
"Komin heim í Heiðardalinn."
Ég vildi bara láta vita að við vorum að koma í Bobo heimilið okkar.
Ferðin gekk vel og allt er í góðu lagi.
grænmetið sem við keyptum á leiðinni upp úr vægri klórblöndu.
Takk innilega fyrir ykkar þátt..... Guð geymi ykkur öll. Skrifa svo meira eins fljótt
og hægt er.
Love,
Gullý
14.01.2012 19:38
Komin til Ouaga - jan 2012
Jæja, þá er rafmagnið komið og net-tengingin virðist nokkuð stöðug núna.
Við áttum frábæra 12 klukkutíma með Tim vini okkar til að spjalla um sameiginlegt áhugamál okkar o.fl. meðan við vorum í London.
Ferðin hingað gekk mjög vel, lentum hér í Ouaga kl.17:30 í gær. Við vorum aftast í "skotti" í Airbus vélinni sem við flugum með frá París. Það var svo hræðilega kalt þar að ég fór í alla sokka sem ég fann = 3 pör, setti hálsklút um fæturna og teppi. Frönsk flugfreyja sagði að þessi tegund flugvéla væri köld - svo næst reyni ég að muna eftir að hafa ullarsokkana með í veskinu.
Allar ferðatöskurnar voru samferða okkur að þessu sinni
Þegar við fórum úr flugstöðinni hér tókum við fyrsta leigubílstjórann sem við sáum. Þegar út kom sáum við að hann átti hrörlegasta leigubílinn með gaskút í skottinu. Það kom svo í ljós að þetta var sami leigubíllinn og við tókum síðast nema nú hafði "heilsu" bíllsins hrakað mjög þar sem vinstra afturhjólið virtist ætla að skoppa undan. En heil komumst við hingað á gistihúsið sem var rafmagnslaust í nokkra klukkutíma eftir að við komum. Við sváfum svo í heila 9 klukkutíma sem er algjört met. Við vorum bæði orðin nokkuð lúin eftir lítinn svefn síðustu sólarhringa.
Hinrik fór svo rúmlega 9 í morgun til að sækja bílinn. Þegar þangað kom var bílinn rafmagnslaus og nú er kl. rúmlega 12 og hann er á leiðinni heim - vonandi á bílnum góða.
Við stefnum á að fara til Bobo á morgun.
Takk innilega fyrir allar bænirnar, við erum mjög þakklát fyrir þær.
Guð geymi ykkur og varðveiti,
Love,
Gullý,
14.01.2012 00:04
Komin til Ouaga
11.01.2012 09:55
Ótitlað
Ta erum vid komin hingad til London a leid til solarlandsins okkar Burkina Faso.
Vid erum buin ad fa agaeta kaelingu heima a Froni ad tessu sinni og nutum tess -- tad var bara dagurinn i gaer sem var dalitid erfidur. Vid forum af stad fra Hreidrinu okkar i sonnu vetrarvedri til ad komast a flugvollinn i Keflavik. Tegar vid komum a Selfoss var okkur dagt ad tad vaeri ekki faert fyrir smabila um trengslin. Vid hofdum ekkert val svo vid heldum afram -- allt gekk vel fyrir utan halku og hlidarvind tar til vid komum langleidina ad sandskeidinu -- tar var vedrid skelfilegt og far=erdin eftir tvi. Tad var gott ad hafa Matta brodir med okkur og bidjandi fruna i aftursaetinu. Eg var nu eiginlega komin med hardsperrur i magann eftir tessa svadilfor, En heil komumst vid a flugvollinn -- tar var fluginu frestad um einn og halfan tima tvi ekki var haegt ad tengja landganginn vid flugvelina vegna hvassvidris. Rett fyrir kl. 18 laegdi tad mikid ad allt var sett i gang og upp forum vid og attum yndislega flugferd og sidan lendingu her a Heathrow.
Vid tokum svo Bus a hotelid sem nalaegt flugvellinum. Tad voru tvi treyttir, svangir en takklatir ferdalangar sem logdust til hvildar um midnaetti .
Vi verdum her tangad til a fostudag, en ta forum vid eldsnemma i flug til Parisar og sidan til /burkina,
Vid tokkum innilega fyrir samveruna heima sem var yndisleg . Vid elskum ykkar og soknum.
love, Gully
08.12.2011 04:30
miðvikudagur
Jæja, þá erum við komin hingað til Ouaga. Erum í sama gistihúsinu og venjulega. Við erum einu gestirnir hér núna en erum samt ekki alveg ein því hér búa nokkrar eðlur og svo sáum við ekki betur en það væri mús að skjótast hér um gólfin.
Hér erum við bún að útrétta ýmislegt - m.a. keyptum við forláta ábreiðu yfir bílinn sem á að bíða hér í borg meðan við verðum heima á Íslandi um jólin. Hér er loftið svo mettað ryki á þessum árstíma að þetta er nauðsynlegt. Við vorum reyndar búin að fá góðan stað fyrir bílinn á góðu verði en fengum svo að vita í dag að verðið fyrir bílastæðið hefði hækkað meira en þrefalt núna fyrir nokkrum dögum svo við erum að kanna hvort við fáum eitthvað ódýrara.
Sunnudagurinn var yndislegur í alla staði - 650 - 700 manns fengu kúfulla diska af mat. - "Beljan" bragðaðist mjög vel enda búin að sjóða í marga klukkutíma. 19 manns bættust í hópinn okkar þennan dag.
Við komum við í skólanum okkar á mánudagsmorguninn á leiðinni hingað. Það var svo gott að geta kvatt börnin og starfsfólkið okkar.
Við eigum að fljúga héðan kl. 09:20 á föstudagskvöldið næsta - millilendum í Niamey, svo París og London - eigum að lenda heima í Keflavík kl.16:00 á laugardag. Það verður mikil breyting fyrir okkur að koma heim í kuldann en við hljótum að þola það. Hér fer hitinn upp í 34 -37 gráður.
Við hlökkum til að koma heim - hitta ykkur og upplifa eftirvæntingu jólanna en það fer lítið fyrir henni hér í hitanum.
Guð geymi ykkur,
Love,
Gullý
04.12.2011 06:08
laugardagskvöld
Við vorum að koma heim eftir langan en yndislegan dag. Vorum í brúðpkaupinu hjá honum Gilbert vini okkar og henni Kathrinu hans. Hnrik gekk vel með ræðuna við hjónavígsluna og þar með er 3 - 4 vikna meðgöngu lokið og "fæðingin" yfirstaðin. Víglsuathöfnin stóð yfir í ca. 2 klst og var þar mikil gleði meðal fólks sem það sýndi með söng og dansi. Veislan var haldin á sundlaugarbökkum hótels hér í nágrenni. Þetta var mjög flott eins og brúðguminn vildi hafa það.
Þarna voru líklega um 500 manns en bara ca 50 sem sátu við háborðið fengu diska til að borða af og var þjónað til borðs. -- Okkur var vísað til sætis við það borð .- Svo voru næst æðstu gestirnir við önnur lítil borð á hinum bakkanum - þeir fengu mat sem hafði verið skammtað í plast umbúðir. Þeir sem þá voru eftir sátu í góðum stólum en höfðu ekki borð. Ég held að flestir hafi fengið matarbakka. Það er svo mikill fjöldi sem kemur í svona brúðkaup - án bðskorts - svo þetta verður að vera svona.
Í gær var stór dagur. Eftir dagleg loforð og mikla fyrirhöfn í heila viku komst gámurinn frá Hull loksins á stöplana sem honum var ætlað að hvíla á - á skólalóðinni.
Svo er það stóri dagurinn á morgun í kirkjunni. Beljan komin í risastóran pott og grænmeti í annan. Þær sem elda matinn ætla að sofa á staðnum - vakna kl. 04:00 og byrja að sjóða hrísgrjónin - ca 2 sekki. Þá lýkur Hinrik seinni "meðgöngunni" þegar hann verður búinn að halda ræðuna sína þar. Við búumst við mörgu, mörgu fólki. Hátíðarhöldin eiga að byrja kl.09:00 og standa líklega yfir fram yfir hádegi.
Ef við getum reynum við að leggja af stað til Ouaga á mánudagsmorgunn. Við sjáum til hvernig gengur að ljúka við að ganga frá hér.
Guð gefi ykkur góðan sunnudag !
Love,
Gullý
